Urs Fischer rekinn frá Union Berlín (Staðfest) - Var þjálfari ársins

Urs Fischer.

Mynd: EPA

Urs Fischer.

Mynd: EPA
Þýska úrvalsdeildarfélagið Union Berlín hefur rekið þjálfarann Urs Fischer úr starfi.
Þetta kemur upp eftir mjög svo slaka byrjun hjá Union á tímabilinu, en liðið hefur tapað 13 af síðustu 14 leikjum sínum.
Fischer tók við Union árið 2018 og kom liðinu upp í þýsku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun. Hann gerði frábæra hluti og kom liðinu í allar þrjár Evrópukeppnirnar, en á yfirstandandi tímabili er liðið í Meistaradeildinni.
Fischer var valinn þjálfari ársins í Þýskalandi eftir að hafa stýrt Union Berlin í fjórða sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Í yfirlýsingu Union segir að þetta séu sorgleg tíðindi en Fischer kveður sem vinur félagsins.
Union Berlín er sem stendur á botni þýsku úrvalsdeildarinnar en nýr þjálfari mun reyna að bjarga málunum hjá félaginu.