Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. desember 2019 17:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísak Snær lagði upp í sigri - Jafntefli hjá Elmari og Hólmari
Ísak Snær lagði upp í dag.
Ísak Snær lagði upp í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theódór Elmar Bjarnason.
Theódór Elmar Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
England
Norwich U23 3 - 1 Sunderland U23

U23 ára lið Norwich sigraði í dag Sunderland í Premier League 2, U23 deildinni, á Englandi.

Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Norwich í leiknum og lék allan leikinn. Ísak lagði upp fyrsta mark leiksins á 20. mínútu fyrir Josh Martin. Ísak fékk þá að líta gult spjald á 28. mínútu.

Sunderland er á botninum í deildinni með einungis eitt stig. Norwich er í næstneðsta sæti með ellefu stig, tveimur stigum frá Newcastle sem er liðið fyrir ofan.

Búlgaría
Lok. Plovdiv 0 - 0 Levski Sofia

Hólmar Örn Eyjólfsson var, líkt og venjulega, í byrjunarliði Levski í efstu deild í Búlgaríu. Liðið heimsótti í dag Plovdiv. Leiknum lauk með markalausu jafntefli liðanna sem er vatn á myllu Ludogorets í toppsæti deildarinnar. Levski og Lok. Plovdiv eru í 2.- og 3. sæti í deildinni.

Hólmar Örn lék allan leikinn í dag og fékk gult spjald á 63. mínútu.

Tyrkland
Balikesirspor 0 - 0 Akhisarspor

Theódór Elmar Bjarnason var, í sjötta leiknum í röð, í byrjunarliði Akhisarspor sem leikur í næstefstu deild í Tyrklandi. Liðið heimsótti Balikesirspor í dag og endaði leikurinn með markalausu jafntefli.

Elmar lék allan leikinn og fékk að líta gula spjaldið á 74. mínútu. Akhisarspor er í þriðja efsta sæti deildarinnar með 26 stig eftir fimmtán umferðir.
Athugasemdir
banner