Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 15. desember 2019 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Jesus segir Mikel Arteta nú þegar frábæran stjóra
Mikel Arteta.
Mikel Arteta.
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta er einn af aðstoðarmönnum Pep Guardiola hjá Manchester City.

Arteta lék með Arsenal á árunum 2011 til 2016, hans fyrrum félag er nú í stjóraleit og þessi 37 ára gamli Spánverji hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá félaginu.

Gabriel Jesus framherji Manchester City segir Arteta nú þegar vera frábæran stjóra.

„Hann hefur reynst okkur mjög vel. Allir hjá félaginu þekkja hann fyrir hans góða starf. Hann er frábær manneskja og frábær stjóri."

„Ég geri mér ekki grein fyrir því hvernig hann hefur hugsað sér næstu skref á sínum þjálfaraferli, en það er hans mál. Ég vona að honum eigi eftir að vegna vel sama hvað hann tekur sér fyrir hendur," sagði Jesus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner