Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 15. desember 2019 10:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
United vissi ekki af riftunarákvæði Minamino
Michael Edwards komst að riftunarákvæðinu en sagan segir að Manchester United hafi ekki vitað af því. Hér að ofan er mynd af Ed Woodward sem sér um kaup á leikmönnum til United.
Michael Edwards komst að riftunarákvæðinu en sagan segir að Manchester United hafi ekki vitað af því. Hér að ofan er mynd af Ed Woodward sem sér um kaup á leikmönnum til United.
Mynd: Getty Images
Allt bendir til þess að Takumi Minamino, framherji/kantmaður Red Bull Salzburg, gangi í raðir Liverpool í janúar.

Samkvæmt grein Independent hefur félagið skoðað Minamino í dágóðan tíma en það hefur Manchester United einnig gert. Af hverju er Minamino þá svona líklegur til að ganga í raðir Liverpool kunna einhverjir að spyrja sig.

Jú, það er vegna þess, samkvæmt heimildum Independent, að Liverpool komst að því að leikmaðurinn er með riftunarákvæði í samningi sínum. Hann er eða var, fer eftir því hvort að trúa eigi sögusögnum um að Liverpool hafi nú þegar krækt í leikmannin, falur fyrir rúmar sjö milljónir punda.

Michael Edwards, yfirmaður íþróttamála hjá Liverpool, komst að þessu ákvæði og það er ástæðan fyrir því að hann er á leið til félagsins. Manchester United vissi ekki af ákvæðinu.

Lesa má meira um málið hér, í grein Independent.

Þetta var einnig í umræðunni í útvarpsþætti Fótbolti.net og má heyra umræðuna í spilaranum hér að neðan.
LiVARpool og Meistaradeildardrátturinn
Athugasemdir
banner
banner