Fotbolti.net
14.12.23 - 18:11
Ívan Guðjón Baldursson

FH staðfestir ráðningu á Kjartani Henry - Skórnir á hilluna?

FH staðfestir ráðningu á Kjartani Henry - Skórnir á hilluna?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er búið að staðfesta ráðningu á Kjartani Henry Finnbogasyni sem nýjum aðstoðarþjálfara meistaraflokks. Heimir Guðjónsson er aðalþjálfari.
Greint var frá þessum fregnum fyrr í dag og eru FH-ingar nú búnir að staðfesta þær.

Kjartan Henry verður aðstoðarmaður Heimis
TENGT EFNI

Kjartan Henry verður aðstoðarmaður Heimis



Í tilkynningu frá FH er ekki tekið fram að Kjartan sé spilandi aðstoðarþjálfari og því góðar líkur á því að hann sé búinn að leggja skóna á hilluna, þrátt fyrir að hafa skorað 11 mörk í 24 deildarleikjum í sumar.

Kjartan Henry er 37 ára gamall. Hann yfirgaf uppeldisfélag sitt KR fyrir síðasta tímabil og gekk til liðs við FH.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.