Real Madrid hefur lánað markvörðinn Andriy Lunin til Real Oviedo en liðið leikur í næst efstu deild á Spáni. Andriy verður hjá Oviedo út þetta tímabil.
Lunin var á láni hjá Real Valladolid en honum tókst ekki að spila deildarleik þar. Jordi Masip er aðalmarkvörður hjá Valladoild og tókst Lunin ekki að slá hann út úr byrjunarliðinu.
Þessi Úkraínski markvörður kom til Real Madrid frá Zorya sumarið 2018, en hann spilaði einungis fjóra deildarleiki á láni hjá Leganes á síðasta tímabili þar sem Ivan Cuellar hélt honum á bekknum.
Andriy Lunin verður 21 árs í næsta mánuði.
Athugasemdir