Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. janúar 2021 06:00
Victor Pálsson
Líklegt að Tevez muni leggja skóna á hilluna
Mynd: Getty Images
Það er talið mjög líklegt að Carlos Tevez sé nú við það að leggja skóna frægu á hilluna fyrir fullt og allt.

Tevez og hans menn í Boca Juniors eru úr leik í Copa Libertadores eftir óvænt 3-0 tap gegn Santos á miðvikudaginn.

Það hefur alltaf verið draumur Tevez að vinna þá keppni en Boca datt nú úr leik í undanúrsitunum.

Samkvæmt fregnum erlendis eru allar líkur á því að síðasti leikur Tevez verði gegn Banfield í úrslitaleik Maradona bikarsins á morgun.

Tevez er orðinn 37 ára gamall en hann gerði garðinn frægan með liðum eins og Manchester City, Manchester United og Juventus.

Tevez hefur leikið með Boca frá árinu 2015 fyrir utan stutt stopp í Kína árið 2017 með Shanghai Shenhua.
Athugasemdir
banner
banner
banner