Lífverðir fylgja Hughton vegna reiði stuðningsmanna

Chris Hughton landsliðsþjálfari Gana.

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Chris Hughton landsliðsþjálfari Gana.

Mynd: Getty Images
Ganverska fótboltasambandið segist standa 100% við bakið á landsliðsþjálfaranum Chris Hughton. Fjölmiðlar segja að stuðningsmenn hafi reynt að ráðast á hann eftir óvænt tap gegn Grænhöfðaeyjum í Afríkukeppninni á sunnudag.
Þetta var fjórða tap Ganverja í síðustu ellefu leikjum undir stjórn Hughton. Þessi fyrrum stjóri Nottingham Forest, Brighton og Newcastle tók við liðinu í febrúar 2022.

TENGT EFNI
Afríkukeppnin: Klaufagangur kostaði Gana
Fótboltasamband Gana segir að Hughton hafi lent í orðaskiptum við stuðningsmenn á hóteli liðsins og málið verið leyst innanbúðar.
Stuðningsmenn eru reiðir eftir tapið gegn Grænhöfðaeyjum og það bætist ofan á þá reiði sem skapaðist þegar liðið tapaði gegn Kómoreyjum í undankeppni HM.
„Það urðu orðaskipti. Einn stuðningsmaður reyndist að komast að þjálfaranum en öryggisgæsla skarst þá í leikinn. Enginn var handtekinn en öryggisverðir fjarlægðu manninn."
„Við áttum fund með þjálfaranum og gáfum honum 100% fullnustu um að við stöndum að fullu með honum," segir Henry Asante-Twum, talsmaður sambandsins.
Öryggisgæsla á liðshóteli Gana hefur verið hert og lífverðir fylgja Hughton eftir.