Fotbolti.net
16.02.21 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Albert og Jóhann Berg í liðum helgarinnar

Jóhann Berg Guðmundsson.

Jóhann Berg Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmennirnir Albert Guðmundsson og Jóhann Berg Guðmundsson áttu góða helgi með sínum félagsliðum.
Albert skoraði fyrir AZ Alkmaar í 3-1 sigri á Heerenveen. Albert gerði út um leikinn með þriðja marki AZ á 81. mínútu.

Albert hefur komið sterkur inn að undanförnu hjá AZ og frammistaða hans kom honum í lið helgarinnar hjá hollenska fjölmiðlinum Voetbal International.

Þá skoraði Jóhann Berg Guðmundsson annan leikinn í röð þegar Burnley vann 3-0 útisigur á Crystal Palace.

Jóhann Berg hefur átt erfitt með meiðsli síðustu mánuði en er búinn að vera að spila mikið að undanförnu og standa sig vel. Hann komst í lið umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni hjá tölfræðisíðunni WhoScored.

Fyrstu leikir Íslands í undankeppni HM eru í næsta mánuði og eru það góð tíðindi að þessir tveir leikmenn séu á góðu róli núna.


Albert Guðmundsson.

Albert Guðmundsson.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.