Fotbolti.net
16.05.19 - 22:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Nonni: Ætlum að vinna okkar heimaleiki

Auglýsing
Jón Þórir Sveinsson.

Jón Þórir Sveinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það eru vonbrigði að vinna ekki heimaleik," sagði Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Fram, eftir jafntefli gegn Haukum í eina leik kvöldsins í Inkasso-deildinni.

„Mér fannst við leggja nógu mikið í leikinn til að vinna hann, en þetta var niðurstaðan."F
Fram er með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leikina.

„Við hefðum viljað vera með fleiri stig. Ekki spurning um það. Við ætlum að vinna okkar heimaleiki. Leikurinn þróaðist bara þannig að við verðum að taka stig út úr þessu."

Marcao, varnarmaður Fram, fékk beint rautt spjald. Nonni sá það ekki almennilega.

„Hann virðist meta það svo að hann hafi slegið leikmann sem mér fannst gera ansi mikið úr því tilfelli. Ég held að það hafi ekki verið rautt spjald. En ég get ekki dæmt um það."

Fram á nokkra leikmenn sem eru að spila með Úlfunum í 4. deild.

„Það eru strákar sem við fylgjumst vel með og þeir eru margir að æfa með okkur. Maður er alveg gapandi hissa á því að KSÍ skuli ekki vinna betur í því að ég hér sé alvöru varaliðskeppni. Þannig að þeir leikmenn geti verið að spila með varaliði en samt fengið tækifæri með aðalliðinu."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.