Miðjumaðurinn ungi, Sverrir Páll Hjaltested hefur verið lánaður í Völsung í 2. deildina frá Val.
Sverrir sem er uppalinn í Víking fór ungur til Noregs en gekk í raðir Vals í febrúar í fyrra. Í fyrra var Sverrir lánaður í KH og lék hann tvo leiki með liðinu og skoraði þar eitt mark.
Völsungur er með þrjú stig að loknum tveimur umferðum í 2. deildinni. Liðið tapaði 4-0 gegn Kára í fyrstu umferðinni en vann síðan góðan 3-1 sigur á Vestra í síðustu umferð.
Völsungur mætir Fjarðabyggð í 3. umferðinni á laugardaginn og er Sverrir Páll kominn með leikheimild fyrir þann leik.
Athugasemdir