Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. maí 2019 15:02
Arnar Daði Arnarsson
Tómas Þór gengur í raðir Innkastsins (Staðfest)
Tómas Þór Þórðarson.
Tómas Þór Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íþróttafréttamaðurinn Tómas Þór Þórðarson bætist í teymi Innkastsins hér á Fótbolta.net. Tómas þarf ekki að kynna fyrir íslensku íþróttaáhugafólki.

Innkastið er vinsæll hlaðvarpsþáttur þar sem hver umferð í Pepsi Max-deildinni er gerð upp, leikirnir skoðaðir, rætt um helstu fréttir, slúðrið skoðað og spáð í framhaldið.

4. umferðinni lýkur í kvöld en Tómas verður með í þættinum þar sem farið verður yfir umferðina.

Magnús Már Einarsson, Gunnar Birgisson og Elvar Geir Magnússon verða áfram á sínum stað.

Hægt er að hlusta á Innkastið hér á síðunni og einnig í öllum helstu hlaðvarpsveitum. Leitað er eftir 'Fótbolti.net' í hlaðvarpinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner