Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 16. júní 2019 21:22
Ívan Guðjón Baldursson
Gullbikarinn: Kanada og Mexíkó með stórsigra
Mynd: Getty Images
Norður-Ameríski Gullbikarinn er farinn af stað og byrjuðu Kanada og Mexíkó á auðveldum sigrum.

Kanada mætti Martíník og vann öruggan 4-0 sigur. Jonathan David skoraði fyrstu tvö mörk leiksins en hann er leikmaður Gent í Belgíu. Hann átti gott tímabil og skoraði 12 mörk í 33 deildarleikjum, 19 ára gamall.

Junior Hoilett, leikmaður Cardiff, og Scott Arfield, sem leikur fyrir Rangers, gerðu síðustu mörkin.

Kanada 4 - 0 Martíník
1-0 Jonathan David ('33)
2-0 Jonathan David ('53)
3-0 Junior Hoilett ('62)
4-0 Scott Arfield ('67)

Mexíkó fór svo afar illa með Kúbu og skoraði Raul Jimenez, sóknarmaður Wolves, tvennu í leiknum.

Carlos Antuna, 21 árs sóknarmaður L.A. Galaxy, skoraði þrennu.

Mexíkó 7 - 0 Kúba
1-0 Carlos Antuna ('2)
2-0 Raul Jimenez ('31)
3-0 Diego Reyes ('38)
4-0 Carlos Antuna ('44)
5-0 Raul Jimenez ('64)
6-0 Alexis Vega ('74)
7-0 Carlos Antuna ('80)
Athugasemdir
banner
banner
banner