Lokaleikur dagsins á Evrópumótinu hefst eftir tæpan klukkutíma. Ítalíu tekur á móti Sviss.
Ítalía leit frábærlega út í fyrsta leik gegn slöku liði Tyrklands. Ítalía vann þar 3-0 sigur, en Sviss gerði 1-1 jafntefli gegn Wales í fyrsta leik sínum.
Ítalía gerir eina breytingu frá fyrsta leik sínum. Giovanni Di Lorenzo kemur inn fyrir Alessandro Florenzi í hægri bakverðinum.
Sviss mætir með óbreytt lið frá leiknum gegn Wales en bæði lið má sjá hér að neðan.
Byrjunarlið Ítalíu: Donnarumma, Di Lorenzo, Bonucci, Chiellini, Spinazzola, Barella, Jorginho, Locatelli, Berardi, Immobile, Insigne.
Byrjunarlið Sviss: Sommer, Elvedi, Schär, Akanji, Mbabu, Freuler, Xhaka, Rodriguez, Seferovic, Shaqiri, Embolo.
Athugasemdir