Valur tekur á móti Breiðablik á Origovellinum á Hlíðarenda í kvöld kl 20:15. Leikurinn er liður í 12.umferð Pepsi Max deildarinnar en er leikinn í kvöld vegna þáttöku beggja liða í Evrópukeppni þetta sumarið.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá Origovellinum
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá Origovellinum
Valsmenn gera þrjár breytingar á liði sínu frá tapinu gegn Stjörnunni. Christian Kohler,Sigurður Egill Lárusson og Kaj Leo detta út fyrir þá Birki Heimisson, Guðmund Andra Tryggvason sem leikur sinn fyrsta byrjunarliðsleik með Val og Almarr Ormarsson.
Blikar gera tvær breytingar frá sigrinum á Fylki. og Jason Daði Svanþórsson eru ekki í hóp í kvöld. Davíð Örn Atlason var upprunalega í byrjunarliði Blika í fyrsta sinn enn hefur verið tekinn út fyrir Davíð Ingvarsson og hefur líklegast verið um innsláttarvillu að ræða. Þá kemur Oliver Sigurjónsson sömuleiðis inn.
Byrjunarlið Vals
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Johannes Vall
5. Birkir Heimisson
6. Sebastian Hedlund
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
13. Rasmus Christiansen
14. Guðmundur Andri Tryggvason
33. Almarr Ormarsson
Byrjunarlið Breiðbliks
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Oliver Sigurjónsson
4. Damir Muminovic
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
10. Árni Vilhjálmsson
11. Gísli Eyjólfsson
20. Kristinn Steindórsson
21. Viktor Örn Margeirsson
25. Davíð Ingvarsson
Leikir kvöldsins:
18:00 Keflavík - HK
18:00 ÍA - KA
20:15 Valur - Breiðablik
20:15 FH - Stjarnan
Athugasemdir