Fyrstu umferð Evrópumeistaramótsins 2020 er nú lokið en í dag þá hefst önnur umferð með þremur leikjum.
Ballið byrjar klukkan 13:00 er Finnland spilar við Rússland. Finnland vann Dani óvænt í fyrstu umferð 1-0 á meðan Rússar töpuðu gegn Belgum.
Síðar um daginn spilar Tyrkland við Wales en Tyrkir töpuðu fyrsta leiknum sannfærandi gegn Ítalíu og gerði Wales jafntefli við Sviss.
Sviss lokar svo deginum með leik gegn Ítaliu klukkan 19:00 þar sem gestirnir í rauðu fá erfitt verkefni.
EM 2020: Riðill A
16:00 Tyrkland - Wales
19:00 Ítalía - Sviss
EM 2020: Riðill B
13:00 Finnland - Rússland
Athugasemdir