Helena Ólafsdóttir og Aníta Lísa Svansdóttir eru hætta með ÍA en þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild félagsins í kvöld.
Helena tók við sem aðalþjálfari ÍA í september árið 2016 og var Aníta Lísa henni til aðstoðar.
ÍA féll þá úr úrvalsdeildinni en hefur síðan þá leikið í Inkasso-deildinni.
Helena og Aníta óskuðu eftir því að hætta hjá félaginu eftir þrjú ár í starfi.
Þær hafa báðar mikla reynslu í þjálfun en þær þjálfuðu FK Fortuna í Noregi áður en þær tóku við ÍA.
Helena hefur þá verið aðalþjálfari hjá Selfoss, KR, Val og FH auk þess sem hún þjálfaði íslenska kvennalandsliðið frá 2003-2004.
Athugasemdir