Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 16. júlí 2021 19:27
Victor Pálsson
Brahim Diaz á leið til AC Milan
Mynd: Getty Images
Brahim Diaz er að ganga í raðir AC Milan á Ítalíu og mun skrifa undir tveggja ára lánssamning við félagið.

Frá þessu er greint í dag en Diaz er samningsbundinn Real Madrid og gekk í raðir félagsins fyrir tveimur árum.

Diaz skrifaði undir samning við Real í janúar 2019 eftir að hafa leikið með Manchester City í þrjú ár.

Sóknarmaðurinn hefur ekki fest sig í sessi á Santiago Bernabeu og mun nú reyna fyrir sér á Ítalíu næstu tvö árin

Diaz er enn aðeins 21 árs gamall og er samningsbundinn Real til ársins 2025.

Hann var í láni hjá Milan á síðustu leiktíð og skoraði þá fjögur mörk í 27 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner