Deilur um samning Ion - Farinn frá Þór (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Spænski miðjumaðurinn Ion Perello hefur yfirgefið herbúðir Þórsara eftir að samningaviðræður sigldu í strand.
Ion gekk til liðs við Þór frá Hetti/Huginn síðasta sumar og lék 13 leiki og skora tvö mörk. Hann hafði komið við sögu í öllum leikjunum í sumar fram að leiknum gegn Grindavík í síðustu umferð.
„Það hafa verið deilur um samninginn hans í langan tíma og á endanum skyldu leiðir," sagði Þorlákur Árnason eftir tap Þórs gegn Aftureldingu í kvöld.
„Mjög góður leikmaður en við höfum fært Marc (Sörensen) aftar á völlinn eftir að hann datt út úr þessu og hann er búinn að vera frábær í tveimur síðustu leikjum þannig við teljum okkur vera búin að leysa það."
Láki býst ekki við miklum breytingum á hópnum í félagsskiptaglugganum en tveir leikmenn eru á leið út í skóla.





