Maguire ekki lengur fyrirliði Man Utd (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Harry Maguire staðfesti í dag að hann væri ekki lengur fyrirliði Manchester United. Erik ten Hag, stjóri liðsins, ætlar að velja annan leikmann til að bera fyrirliðabandið í vetur.
Maguire staðfesti þetta í færslu á samfélagsmiðlum sínum.
Maguire staðfesti þetta í færslu á samfélagsmiðlum sínum.
„Stjórinn upplýsti mig í dag að hann er að breyta um fyrirliða. Hann útskýrði ákvörðun sína fyrir mig og þrátt fyrir að ég sé afskaplega vonsvikinn þá mun ég halda áfram að gera mitt allra besta þegar ég klæðist treyjunni," skrifar Maguire.
„Ég vil þakka stuðningsmönnum fyrir þeirra frábæra stuðning á meðan ég hef verið fyrirliði liðsins," bætti miðvörðurinn við.
Ole Gunnar Solskjær gerði Maguire að fyrirliða liðsins árið 2020 þegar Ashley Young yfirgaf félagið og hefur hann verið það síðan.
Maguire hefur verið orðaður í burtu frá Man Utd í sumar og eru nýjustu sögur á þá leið að West Ham vilji fá hann í sínar raðir.

After discussions with the manager today he has informed me he is changing captain. He outlined his reasons to me and whilst I’m personally extremely disappointed, I will continue to give my all every time I wear the shirt.
— Harry Maguire (@HarryMaguire93) July 16, 2023
So I wanted to say a massive thank you to the… pic.twitter.com/TAOS0eisF1