Fotbolti.net
16.07.23 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson

Strasbourg kaupir Sylla (Staðfest) - Eyrnamerktur fyrir Chelsea

Sylla skoraði sigurmarkið er Club Brugge sló Bayer Leverkusen úr Meistaradeildinni síðasta haust.

Sylla skoraði sigurmarkið er Club Brugge sló Bayer Leverkusen úr Meistaradeildinni síðasta haust.

Canon

Mynd: EPA

Franska félagið Strasbourg, sem var nýverið keypt af Todd Boehly eiganda Chelsea, er búið að bæta félagsmetið sitt þegar kemur að leikmannakaupum.

Abakar Sylla er kominn til félagsins frá Club Brugge, fyrir 22 milljónir evra. Strasbourg greiðir 10 milljónir strax og 10 milljónir á næsta ári, auk tveggja milljóna í árangurstengdar aukagreiðslur og 10% endursölurétti fyrir belgíska félagið.

Sylla er 20 ára miðvörður með þrjá landsleiki að baki fyrir Fílabeinsströndina. Hann lék 27 leiki með Club Brugge á síðustu leiktíð og stóð sig feykivel, sem vakti áhuga frá mörgum félagsliðum og meðal annars Chelsea.

Samkvæmt fótboltafréttamanninum Fabrizio Romano er Sylla eyrnamerktur fyrir Chelsea í framtíðinni, en hann er keyptur til Strasbourg til að öðlast reynslu í hæsta gæðaflokki.

Sylla var tvístígandi með að ganga í raðir Strasbourg en tók ákvörðunina eftir að Chelsea blandaði sér í viðskiptin.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.