Fotbolti.net
16.07.23 - 20:21
Ívan Guðjón Baldursson

Tadic til Fenerbahce (Staðfest) - Livakovic og Becao á leiðinni

Tadic til Fenerbahce (Staðfest) - Livakovic og Becao á leiðinni
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska stórveldið Fenerbahce er að styrkja leikmannahópinn sinn umtalsvert í sumar eftir að hafa krækt í Edin Dzeko og Ryan Kent á frjálsri sölu.

Dusan Tadic bætist við eftir að hafa fengið að rifta samningi sínum við Ajax ári áður en hann átti að enda.

Tadic, sem lék fyrir Southampton frá 2014 til 2018, er 34 ára gamall og gerir tveggja ára samning við Fenerbahce. Hann kemur úr röðum Ajax þar sem hann var algjör lykilmaður og kom að 217 mörkum í 241 leik. Hann var áfram í mikilvægu hlutverki á síðustu leiktíð þrátt fyrir hækkandi aldur og kom að 34 mörkum.

Hann er vinstri kantmaður að upplagi en er afar fjölhæfur og getur einnig spilað framarlega á miðjunni, úti á hægri kanti eða í fremstu víglínu.

Tadic vann hollensku deildina þrisvar með Ajax og hjálpaði liðinu að komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar tímabilið 2018-19, en tapaði þar ótrúlega naumlega gegn Tottenham eftir dramatískt sigurmark Lucas Moura á 96. mínútu í Amsterdam. Tottenham komst áfram á útivallarmörkum.

Fenerbahce ætlar ekki að hætta hér því félagið mun kynna tvo nýja leikmenn til viðbótar á næstu dögum. Annar þeirra er brasilíski miðvörðurinn Rodrigo Becao sem kemur úr röðum Udinese fyrir 10 milljónir evra og hinn er Dominik Livakovic, landsliðsmarkvörður Króatíu sem kemur úr röðum Dinamo Zagreb fyrir 9 milljónir. 

Félagið hafði einnig áhuga á Keylor Navas, markverði PSG, en kaus Livakovic frekar sökum aldurs. Navas er 36 ára en Livakovic 28.


Tadic til Fenerbahce (Staðfest) - Livakovic og Becao á leiðinni
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.