Fotbolti.net
16.07.23 - 17:24
Þorsteinn Haukur Harðarson

Vigfús: Nú eru okkur allir vegir færir

Auglýsing
Vigfús Arnar Jósefsson.

Vigfús Arnar Jósefsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

"Ég er hrikalega ánægður. Þetta var ógeðslega flottur sigur. Strákarnir komu aftur til baka alveg eins og í seinasta leik og sýndu alvöru karakter. Allt hrós á þá," sagði Vigfús Arnar Jósefsson, þjálfari Leiknis, eftir 4-2 sigur gegn Selfossi í dag.

"Við vorum þungir í upphafi seinni hálfleiks en þeir strákar sem komu inn á sem varamenn áttu frábærar innkomur og gerðu okkur kleift að vinna leikinn."

Leiknir fór illa af stað í deildinni og starf þjálfarans sagt í mikilli hættu. Nú hefur liðið hinsvegar unnið þrjá leiki af seinustu fjórum og komið í sjötta sætið. "Þetta er það skemmtilega við boltann að þegar maður nær að tengja saman sigra er þetta fljótt að breytast. Andrúmsloftið léttist líka inn á æfingunum og allt verður auðveldara. Nú eru okkur allir vegir færir."

Þá reiknar hann með breytingum á hópnum þegar félagaskiptaglugginn opnar á þriðjudag. "Já það getur vel verið. Það verður ekki mikið en örugglega einhverjar hreyfingar."

Allt viðtalið við Vigfús má sjá í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.