Fotbolti.net
16.07.26 - 21:10
Brynjar Ingi Erluson

Besta deild kvenna: Ólympíumark og tvíburatenging þegar FH endurheimti toppsætið

FH er komið aftur á toppinn

FH er komið aftur á toppinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hertz
Grindavík/Njarðvík 1 - 6 FH
1-0 Hannah McLaughlin ('12 )
1-1 Helena Maree Errington ('41 )
1-2 Ída Marín Hermannsdóttir ('45 , víti)
1-3 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('54 )
1-4 Helena Maree Errington ('67 )
1-5 Nia Raisa Christopher ('74 )
1-6 Ragnheiður Th. Skúladóttir ('75 )
Lestu um leikinn
FH-ingar eru komnar aftur á topp Bestu deildar kvenna eftir sannfærandi 6-1 sigur á Grindavík/Njarðvík á JBÓ-vellinum í kvöld.

Hafnfirðingar hafa verið nánast óstöðvandi á tímabilinu og leikið sér að andstæðingum sínum að undanförnu.

Byrjunin í kvöld var þó ekki sú besta. Heimakonur komust yfir á 12. mínútu eftir góða pressu. Hannah McLaughlin var með boltann fyrir utan teig, leitaði að sendingarleið en lét síðan vaða að marki. Boltinn hafði viðkomu í varnarmanni og hafnaði í netinu.

FH tók völdin eftir markið og sótti jafnt og þétt að marki heimakvenna. Jöfnunarmarkið kom loksins undir lok fyrri hálfleiks þegar Helena Errington afgreiddi fyrirgjöf Ingibjargar Magnúsdóttur í netið á fjærstönginni.

Ída Marín Hermannsdóttir fiskaði síðan vítaspyrnu nokkrum mínútum síðar og fór sjálf á punktinn. Hún skoraði af öryggi og kom FH í verðskuldaða forystu áður en flautað var til hálfleiks.

FH-ingar gengu frá dæminu í síðari hálfleik. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoraði beint úr hornspyrnu á 54. mínútu, svokallað Ólympíumark. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún leikur þann leik og líklega ekki það síðasta.

Eftir það var ekki lengur spurning hvort FH myndi vinna heldur hversu stór sigurinn yrði.

Gestirnir héldu áfram að keyra á heimakonur og skoruðu þrjú mörk á átta mínútna kafla. Errington gerði sitt annað mark á 67. mínútu með föstu skoti fyrir utan teig sem söng í netinu alveg úti við stöng.

Nia Raisa Christopher bætti við fimmta markinu eftir að leikmönnum Grindavíkur/Njarðvíkur mistókst að koma boltanum frá.

Tvíburasysturnar Ragnheiður og Unnur Skúladætur sáu síðan um sjötta og síðasta mark FH. Ragnheiður var nýkomin inn af bekknum þegar Unnur fann hana dauðafría inni á teignum og hún skoraði af öryggi.

Stórsigur FH var þar með í höfn, en liðið hefur nú skorað fimm mörk eða fleiri í þremur af síðustu fjórum deildarleikjum sínum.

FH-ingar eru sjóðandi heitar og sitja á toppnum með 26 stig, tveimur stigum á undan Íslandsmeisturum Breiðabliks. Grindavík/Njarðvík er í sjötta sæti með tólf stig.
Andrea Rán skoraði beint úr hornspyrnu

Andrea Rán skoraði beint úr hornspyrnu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tvíburasysturnar Ragnheiður og Unnur áttu sjötta markið

Tvíburasysturnar Ragnheiður og Unnur áttu sjötta markið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH11+2126
2Breiðablik11+1624
3Stjarnan11+921
4ÍBV11020
5Þróttur R.11-313
6Grindavík/Njarðvík11-912
7Valur11-410
8Víkingur R.11-1110
9Fram11-1310
10Þór/KA11-69
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.