Fotbolti.net
16.07.26 - 21:53
Brynjar Ingi Erluson

Evrópudeildin: Qarabag of stór biti fyrir Vestra

Vestri er úr leik í Evrópudeildinni

Vestri er úr leik í Evrópudeildinni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri 0 - 3 Qarabag (0-6 samanlagt)
0-1 Jaly Mouaddib ('5 )
0-2 Pedro Bicalho ('29 )
0-3 Zakaria Sawo ('56 )
Lestu um leikinn
Bikarmeistarar Vestra eru úr leik í Evrópudeildinni eftir annað 3-0 tap gegn Qarabag frá Aserbaísjan í síðari leik liðanna á AVIS-vellinum í Laugardal í kvöld.

Qarabag lék í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili og sýndi þar styrk sinn. Það var því ljóst fyrir einvígið að erfitt verkefni biði Ísfirðinga.

Fyrri leiknum lauk með 3-0 sigri Qarabag og urðu úrslitin þau sömu í kvöld.

Jaly Mouaddib kom gestunum yfir strax á 5. mínútu. Qarabag spilaði sig upp hægra megin og sendi boltann fyrir markið. Marvin Darri Steinarsson náði ekki að halda honum og Mouaddib fylgdi á eftir og skoraði af öryggi.

Vestri sýndi mikla baráttu og kom sér í ágætar stöður á næstu mínútum, en Qarabag refsaði aftur eftir slaka sendingu úr vörn heimamanna.

Boltinn barst til Pedro Bicalho sem lét vaða fyrir utan teig. Skotið hafði viðkomu í varnarmanni áður en boltinn söng efst í hægra horninu.

Zakaria Sawo skoraði þriðja mark Qarabag á 56. mínútu. Kady lyfti boltanum yfir vörn Vestra og Sawo keyrði inn í teiginn áður en hann afgreiddi hann í nærhornið.

Ísfirðingar áttu mjög góðan kafla eftir markið og sköpuðu sér nokkur vænleg færi, en tókst ekki að koma boltanum í netið. Hinum megin fór Sawo nálægt því að bæta við öðru marki þegar hann skaut í stöngina.

Baráttan var til staðar hjá Vestra, en Qarabag reyndist einfaldlega of stór biti. Ísfirðingar eru þar með úr leik í Evrópudeildinni, en Evrópuævintýri þeirra heldur áfram.

Vestri mætir lettneska liðinu RFS í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Leikirnir fara fram 23. og 30. júlí.
Vestri fer í forkeppni Sambandsdeildarinnar þar sem þeir mæta RFS frá Lettlandi

Vestri fer í forkeppni Sambandsdeildarinnar þar sem þeir mæta RFS frá Lettlandi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.