Íslendingaliðið skráði sig á spjöld sögunnar eftir stórfurðulegt atvik í lokin

Sigurður Ragnar Eyjólfsson varð fyrsti þjálfarinn til að vinna tveggja leikja einvígi með NSÍ Runavík í Evrópukeppni

Mynd: NSÍ Runavík

Færeyska liðið NSÍ Runavík, sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrir, er komið áfram í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir frábæran 2-1 sigur liðsins á Hamrun frá Möltu í kvöld.
Liðin skildu jöfn, 1-1, í fyrri leiknum í Færeyjum, en NSÍ gerði út um einvígið í kvöld.
Petur Knudsen reyndist hetja færeyska liðsins þegar hann skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu uppbótartíma. Vítaspyrnan var með því furðulegra sem sést hefur, en Emerson Marcelina, varnarmaður Hamrun, taldi boltann vera úr leik þegar hann greip hann með höndum. Ekki er notast við VAR og því ekki hægt að skoða atvikið aftur, en dómararnir voru vissir í sinni sök og dæmdu vítaspyrnu sem Knudsen skoraði örugglega úr.
Alex Freyr Elísson sat allan leikinn á varamannabekk NSÍ, sem náði sögulegum árangri. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið vinnur tveggja leikja einvígi í Evrópukeppni.
NSÍ vann einnig leik í forkeppninni árið 2020 þegar liðið lagði Barry Town frá Wales, 5-0. Þá var þó aðeins leikinn einn leikur vegna kórónuveirufaraldursins, en seinni leiknum var aflýst.
NSÍ mætir Koper frá Slóveníu í næstu umferð. Fyrri leikurinn fer fram í Færeyjum 23. júlí og sá síðari í Koper viku síðar.

Absolutely crazy scenes! With the Europa Conference tie at 1-1 in the 90th minute, a shot from Runavik rolled across the front of goal. A defender picked the ball up thinking it had gone out of play - it hadn't!
— CovertFootballTrips (@CovertFootyTrip) July 16, 2026
HANDBALL PENALTY!
Hamrun Spartans 1 - 2 NSI Runavik pic.twitter.com/QoNm80Uw5s