Fotbolti.net
16.07.26 - 22:20
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

L'Equipe: Olise dreymir um Real Madrid

Michael Olise

Michael Olise

Canon

Mynd: EPA

Franski fjölmiðilinn L'Equipe fullyrðir að Michael Olise vilji ganga í raðir Real Madrid frá Bayern München. Þetta er saga sem gæti breyst í verri sápuóperu en félagaskipti Kylian Mbappe frá Paris Saint-Germain til Real Madrid.
Olise er 24 ára og einn eftirsóttasti vængmaður heims eftir tvö stórkostleg tímabil með Bayern.

Spænskir miðlar telja að hann endi hjá Real Madrid og segja það ekki spurningu hvort heldur hvenær af félagaskiptunum verði. Florentino Perez, forseti Real Madrid, er sagður leiða áhuga félagsins.

Í Þýskalandi er hins vegar allt annað hljóð í strokknum. Bayern hefur ítrekað að Olise sé ekki til sölu og að hann vilji vera áfram hjá félaginu. Florian Plettenberg hjá Sky segir Bayern undirbúa viðræður við Frakkann um nýjan og endurbættan samning.

Franski miðillinn L'Equipe hefur nú blandað sér í umræðuna. Þar segir að Olise hafi lengi dreymt um að leika með Real Madrid og að hann hafi þegar tjáð liðsfélögum sínum í franska landsliðinu að hann vilji fara þangað.

Þessi saga virðist ætla að vinda verulega upp á sig og er þegar farin að minna örlítið á eltingarleik Real Madrid við Mbappe. Það tók spænska stórveldið sjö ár að landa honum.

Samkvæmt L'Equipe er það ekkert leyndarmál að Real Madrid sé draumafélag Olise.

Forráðamenn Bayern hafa þó ítrekað sagt að þeir myndu ekki selja hann, jafnvel þótt 200 milljóna evra tilboð bærist.

Neymar er enn dýrasti leikmaður sögunnar, en Paris Saint-Germain keypti hann frá Barcelona fyrir 222 milljónir evra árið 2017. Sama ár samdi félagið við Mbappe frá Mónakó í viðskiptum sem voru metin á 180 milljónir evra. Ekkert félag hefur síðan greitt sambærilega upphæð fyrir leikmann.
L'Equipe: Olise dreymir um Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.