Fotbolti.net
16.07.26 - 21:18
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Afturelding á miklu skriði

Joacim Holtan og Óðinn Bjarkason halda áfram að raða inn mörkum fyrir Aftureldingu

Joacim Holtan og Óðinn Bjarkason halda áfram að raða inn mörkum fyrir Aftureldingu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
Afturelding 3 - 2 Leiknir R.
1-0 Joacim Emil Godhei Holtan ('5 )
1-1 Axel Freyr Harðarson ('10 )
2-1 Óðinn Bjarkason ('18 )
3-1 Joacim Emil Godhei Holtan ('63 )
3-2 Jóhann Kanfory Tjörvason ('90 )
Lestu um leikinn
Afturelding er aftur komin með fjögurra stiga forystu á toppi Lengjudeildar karla eftir 3-2 sigur á Leikni á Malbikstöðinni að Varmá í kvöld.

Norðmaðurinn Joacim Holtan var ekki lengi að koma heimamönnum yfir. Bart Kooistra fékk boltann aleinn hægra megin í teignum á 5. mínútu og renndi honum fyrir markið á Holtan, sem átti ekki í neinum vandræðum með að koma honum í netið.

Gestirnir voru þó fljótir að svara. Axel Freyr Harðarson nýtti sér kæruleysislegan varnarleik Aftureldingar, færði boltann yfir á hægri fótinn og lét vaða. Skotið hafði viðkomu í varnarmanni og hafnaði í netinu.

Óðinn Bjarkason kom Aftureldingu aftur yfir á 18. mínútu eftir vel útfærða sókn. Elmar Kári Enesson Cogic sendi boltann upp hægri kantinn á Kooistra, sem fann Georg Bjarnason. Hann kom boltanum áfram á Óðinn sem stangaði hann í netið.

Þetta var ellefta deildarmark Óðins á tímabilinu og er hann nú einn á toppnum í baráttunni um markakóngstitilinn.

Holtan skoraði sitt annað mark og kom Aftureldingu í 3-1 á 63. mínútu eftir mistök Ólafs Íshólms Ólafssonar í marki Leiknis. Axel Óskar Andrésson tók innkast á Bjart Bjarma Barkarson, sem átti skot að marki. Ólafur hélt ekki boltanum og Holtan fylgdi á eftir og skoraði sitt tíunda deildarmark á tímabilinu.

Leiknismenn náðu að minnka muninn undir lokin þegar Jóhann Kanfory Tjörvason skoraði með frábæru skoti hægra megin úr teignum. Markið kom hins vegar of seint og gestirnir þurftu að sætta sig við tap.

Afturelding hefur nú unnið fimm leiki í röð og situr á toppnum með 31 stig. Leiknir er í sjöunda sæti með 19 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding13+2128
2Fylkir13+927
3HK14+625
4Þróttur R.13+1224
5Vestri14-121
6Njarðvík13+420
7Leiknir R.13+119
8Grótta13-419
9Grindavík13-313
10ÍR14-1112
11Völsungur13-168
12Ægir14-188
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.