Fotbolti.net
16.07.26 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson

Samþykkir að ganga í raðir Villa

Samþykkir að ganga í raðir Villa
Canon

Mynd: EPA

Pervis Estupinan, leikmaður AC Milan, hefur samþykkt að ganga í raðir Aston Villa á Englandi.
Villa-menn eru í leit að nýjum vinstri bakverði þar sem franski landsliðsmaðurinn Lucas Digne er á leið aftur til Paris Saint-Germain.

Estupinan var einn þriggja leikmanna á óskalista Villa og er félagið nú komið langt á veg með að ganga frá kaupum á honum.

Ekvadormaðurinn lék með Brighton í ensku úrvalsdeildinni í þrjú ár en hafði áður spilað undir stjórn Unai Emery hjá Villarreal.

Hann gekk til liðs við AC Milan á síðasta ári en missti fljótlega sæti sitt í byrjunarliðinu og vill nú leita annað. Samkvæmt Fabrizio Romano hefur hann þegar samþykkt að ganga til liðs við Aston Villa.

Félögin vinna nú að því að ná saman um kaupverð, en Milan er talið vilja í kringum 15 til 18 milljónir punda fyrir hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.