Gunni Borgþórs: Ekki nógu sáttur að vinna ekki leikinn
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er náttúrlega mjög sáttur með stigið úr því sem komið var, en ég er ekki nógu sáttur með að hafa ekki unnið leikinn,\" sagði Gunnar Borgþórsson þjálfari Selfyssinga eftir 1-1 jafntefli við Þór í kvöld.
„Við erum ekki sáttir með hvernig við spiluðum leikinn. Við byrjuðum mjög vel, áttum fína kafla en við vorum að missa boltann mjög mikið og lentum dálítið undir í baráttunni."
„Sumarið er sennilega bara nokkurn veginn á pari. Við erum að byggja upp nýtt lið og erum með ungan og mjög skemmtilegan kjarna. Okkur gekk mjög vel í bikarnum og höfum verið að lifa dálítið á því. Við höfum verið að vinna fleiri leiki undanfarið og skora meira af mörkum og fá færri á okkur. Þannig að sumarið er betra hingað til en síðustu sumur."
Guðmundur Ársæll Guðmundsson dæmdi leikinn en þótti ekki standa sig vel.
„Ég legg ekki í vana minn að tala um dómara eftir leiki en ég sagði það við hann, og þá, að mér fannst þeir ekki standa sig vel, í rauninni bara mjög illa. Þeir eiga slæma daga eins og allir, en þeir þurfa að kíkja á svona leiki, og ég vona að þeir geri það. Þeir þurfa náttúrlega að skoða þetta, þetta þarf að vera miklu, miklu, miklu betra."
Viðtalið við Gunna má sjá í heild sinni hér að ofan.