Ægir fékk Arngrím, Aron Fannar og Jóhannes Breka (Staðfest)

Mynd: Ægir

Mynd: Ægir
Lengjudeildarlið Ægis hefur fengið þá Jóhannes Breka Harðarson, Aron Fannar Hreinsson og Arngrím Bjart Guðmundsson til félagsins fyrir átökin í lokakafla mótsins.
Jóhannes Breki er 19 ára gamall og kemur á láni frá ÍA en hann er sóknarþenkjandi leikmaður sem getur bæði spilað á kanti sem og miðju. Hann hefur komið við sögu í síðustu tveimur leikjum Ægis í Lengjudeildinni.
Aron Fannar er 21 árs gamall og semur við félagið til næstu þriggja ára. Hann er sóknarmaður sem kemur frá ÍR, en er uppalinn í Fjölni.
Þá er Arngrímur Bjartur 18 ára gamall og kemur frá FH á láni út tímabilið. Hann lék sinn fyrsta leik í 3-2 tapinu gegn Þór á dögunum.
Hann er miðvörður að upplagi og á 5 landsleiki fyrir U17 ára landsliðið. Þá spilaði hann einn leik í Bestu deildinni með FH á síðasta ári.
Ægir er í neðsta sæti deildarinnar með 8 stig þegar sex leikir eru eftir af mótinu. Liðið hefur aðeins unnið tvo leiki og þarf kraftaverk til að halda sæti sínu í deildinni.