Aron Einar fær nýjan liðsfélaga frá PSG (Staðfest)

Abdou Diallo í leik með PSG

Mynd: EPA

Abdou Diallo í leik með PSG

Mynd: EPA
Senegalski miðvörðurinn Abdou Diallo er mættur til katarska félagsins Al-Arabi frá Paris Saint-Germain.
Diallo, sem er 27 ára gamall, kom til PSG frá Borussia Dortmund fyrir fjórum árum og spilaði 75 leiki ásamt því að vinna tvo deildartitla með franska félaginu.
Á síðasta tímabili var hann á láni hjá RB Leipzig í Þýskalandi en ákvað að stökkva á öðruvísi ævintýri í þessum glugga.
Hann hefur samið við Al-Arabi í Katar og verður því liðsfélagi íslenska landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar.
Al-Arabi hefur leik í stjörnudeildinni í Katar á morgun er liðið mætir Al-Shamal.

??? ??????? ??????!
— Al-Arabi Sports Club (@alarabi_club) August 15, 2023
??????#?????_??????#?????? pic.twitter.com/gFCaTJBNYU