Gríðarlegur munur á Club Brugge og Dundalk
„Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, þetta var mjög góð æfing," sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, eftir æfingu liðsins á Laugardalsvelli í dag.
KA-menn æfðu á Laugardalsvelli í dag fyrir leik liðsins gegn Club Brugge frá Belgiu á vellinum annað kvöld.
Framundan er seinni leikur KA við Club Brugge en fyrri leikurinn endaði með 5-1 sigri belgíska liðsins.
„Þetta er náttúrulega fáránlega gott lið og maður þarf að hlaupa mikið. Við ætlum að reyna að ná í góð úrslit á morgun," segir Hallgrímur en hvernig var upplifunin af fyrri leiknum?
„Þetta var mjög gaman. Þetta var fullur völlur og þeir eru svolítið klikkaðir stuðningsmennirnir. Það var skemmtileg upplifun að spila þennan leik þó úrslitin hefðu mátt vera aðeins betri."
„Þeir eru mjög vel spilandi og eitt af betri liðum í Evrópu á sínum degi. Það er erfitt að ná í úrslit en það er alltaf möguleiki í fótbolta. Við lifðum í voninni þangað til við fengum skellinn rétt fyrir hálfleik. Mér fannst við vera búnir að halda þeim vel í skefjum þangað til þeir skora annað markið. Þá koma þrjú í grillið á okkur."
Hvað er planið á morgun?
„Við ætlum bara að spila okkar leik. Við vorum ekki að fara í neitt bull þó við lentum undir. Við reyndum alltaf að spila okkar leik sem ég var mjög ánægður með. Við ætlum líka að reyna það á morgun og vonandi náum við að skora mörk, vonandi náum við að vinna leikinn."
Núna er þetta skemmtilegt
Hallgrímur er ánægður með það hvernig Evrópuævintýri KA hefur þróast og hversu langt liðið hefur náð.
„Núna er þetta skemmtilegt. Við höfum náð langt og erum að spila við eins góð lið eins og við erum að spila við á morgun. Ég hefði ekki verið sáttur ef við hefðum dottið út á móti Dundalk. Það hefði ekki verið gaman að enda á vellinum sem þeir bjóða upp á, þeim hryllingi. Maður er í þessu fyrir svona leiki. Þetta er geggjað," segir Hallgrímur en KA sló út írska félagið Dundalk í annarri umferð. Það var mikið rætt um þann ömurlega völl sem Dundalk bauð upp á í seinni leik liðanna.
„Ég held að ég myndi ekki bjóða mínum versta óvini að vera í svona klefa og í svona aðstæðum. Völlurinn var viðbjóður. Við erum orðin helvíti góðu vön með gervigrasið hérna heima."
Það er mikill munur á þeim aðstæðum sem Dundalk og Club Brugge eru að bjóða upp á.
„Það er stór munur. Það var gott að fara í gegnum það og spila við Club Brugge í þessu einvígi."
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Grímsi vonast til að sjá sem flesta stuðningsmenn í gulu á vellinum á morgun og það verði þá hægt að nota þennan leik sem eins konar upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn sem KA er að fara að taka þátt í seinna í sumar.
Sjá einnig:
Súrrealísk stund á Írlandi - „Hefðum allir fengið sveppasýkingu ef við hefðum farið í sturtu þarna"
Athugasemdir























