Fotbolti.net
16.08.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ighalo frá Al-Hilal til Al-Wehda (Staðfest)

Ighalo frá Al-Hilal til Al-Wehda (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nígeríski framherjinn Odion Ighalo hefur samið við Al-Wehda í Sádi-Arabíu en hann kemur frá Al-Hilal.
Ighalo, sem er 34 ára gamall, hefur komið víða við á ágætlega farsælum ferli.

Hann spilaði með Watford frá 2014 til 2017 en þaðan fór hann til Kína þar sem hann lék með bæði Changchun Yatai og Shanghai Shenhua.

Í byrjun árs 2020 var hann lánaður til Manchester United og spilaði þar í ár þar sem hann gerði fimm mörk í 23 leikjum áður en hann fór til Al-Hilal í Sádi-Arabíu.

Þrátt fyrir að hafa skorað 42 mörk í 58 leikjum á tveimur tímabilum sínum þar, þá var ekki lengur pláss fyrir hann og hefur hann nú samið við Al-Wehda til næstu tveggja ára.

Al-Hilal er að sækja mörg stór nöfn en þeir Ruben Neves, Malcom, Sergej Milinkovic-Savic og Kalidou Koulibaly eru allir komnir til félagsins og þá er Neymar einnig að mæta. Aleksandar Mitrovic gæti þá tekið pláss Ighalo hjá Al-Hilal ef það nær samkomulagi við Fulham.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.