Fotbolti.net
16.08.23 - 10:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Payet til Brasilíu (Staðfest)

Payet til Brasilíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Vasco da Gama

Franski miðjumaðurinn Dimitri Payet er genginn í raðir brasilíska félagsins Vasco da Gama.

Hann er 36 ára gamall og kemur frá Marseille þar sem hann hafði verið í sex ár. Hann kom til Marseille frá West Ham eftir að hafa vakið mikla athygli í úrvalsdeildinni fyrir gæði sín með boltann.
Hann tilkynnti í síðasta mánuði að hann væri farinn frá Marseille og nú er hann genginn í raðir Vasco da Gama.

Payet lék á sínum tíma 38 landsleiki fyrir Frakkland og skoraði í þeim átta mörk. Ásamt því að spila með Marseille og West Ham hefur hann spilað með Lille, Saint-Etienne, Nantes og AS Excelsior á ferlinum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.