Fotbolti.net
16.08.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Tveir tékkneskir markverðir farnir frá Man Utd (Staðfest)

Matej Kovar er farinn til Leverkusen

Matej Kovar er farinn til Leverkusen

Canon

Mynd: Getty Images

Tékknesku markverðirnir Ondrej Mastny og Matej Kovar eru báðir farnir frá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United.
Mastny er 21 árs gamall og kom til United frá Vysocina Jihlava fyrir fimm árum.

Hann spilaði með bæði U18 og U21 ára liði United en er nú farinn aftur heim til Tékklands og í sitt gamla félag, Vysocina Jihlava.

Kovar fékk aðeins meiri reynslu hjá United en Mastny. Hann kom frá Slovacko í Tékklandi og var fastamaður í U21 ára liði United.

Markvörðurinn spilaði aldrei keppnisleik fyrir aðalliðið en lék tvo vináttuleiki í sumar og var þá á bekknum gegn bæði Lens og Bilbao í síðustu tveimur leikjunum fyrir tímabilið.

Hann er farinn til Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Það þýðir að einn tékkneskur markvörður er eftir en það er Radek Vitek, sá er 19 ára gamall og spilar með U21 árs liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.