Fotbolti.net
16.08.23 - 22:19
Haraldur Örn Haraldsson

Úlfur reiður eftir leikinn: Dómarinn var ömurlegur

Auglýsing
Úlfur reiður eftir leikinn: Dómarinn var ömurlegur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Úlfur Arnar Jökulsson þjálfari Fjölnis var allt annað en sáttur að leikslokum eftir að liðið hans gerði 3-3 jafntefli við Gróttu á Seltjarnarnesi í kvöld.

„Ég er bara dofinn, æji þetta er bara svo... Við byrjum náttúrulega á því að gefa þeim mark, en aðdragandinn að því marki er mjög sérstakur vegna þess að það er tvisvar sinnum búið að taka senterinn minn og rífa hann niður og það er ekki dæmt á það, svo um leið og við gerum eitthvað við þá, þá er dæmt. Mér fannst þetta aukaspyrna, aðdragandinn. En við gefum það mark svo er bara eitt lið á vellinum. Í seinni hálfleik kemur ein skyndisókn, 2-0 og við leggjum alla þessa vinnu í að komast yfir. Við þurfum að verjast einu löngu innkasti í lokin og klikkum á því en þetta er bara saga sumarsins. Það er óheppni í bland við klaufaskap. Ég bara skil ekki hvernig við fórum að því að vinna ekki þennan leik og það hjálpaði nú ekki til, og nú ætla ég bara að vitna í Arnar Gunnlaugsson: Dómarinn var ömurlegur, hann var ömurlegur. Ég hef ekki séð slakari dómgæslu í allt sumar á Íslandi. Þetta var bara farsi frá A - Ö. Hann hjálpaði okkur heldur betur ekki í þessum leik, vegna þess að í fyrsta markinu er brot í aðdragandum, það er keyrt aftan í Reyni hérna í fyrri hálfleik. Ég er bara reiður."

Það var tvívegis í leiknum sem Fjölnir vildi fá víti fyrir utan vítið sem þeir fengu og Úlfur vill meina að það hefði átt að vera dæmt allavega í eitt skipti þar.

„Já ég meina það er keyrt aftan í Reyni hérna í fyrri hálfleik, púra víti. Hann dæmdi ekkert á það. Ég meina þeir lágu til baka í 5-3-2 og bomba honum svo fram og senterarnir þeirra biðu bara eftir að hafsentinn hoppaði upp í boltan, hrintu þeim svo, meðan þeir voru í loftinu og sluppu þannig í gegn, fengu að komast upp með það allan leikinn. Bara algjört grín."

Fjölnismenn voru mikið með boltan í leiknum en þeim gekk illa að skapa færi sérstaklega fram að fyrsta markinu þeirra sem kom á 69. mínútu.

„Það er alltaf erfitt þegar þeir eru með 8 menn þarna bara inn í teignum, en það vantaði svolítið síðustu sendinguna á þann mann sem á að vera hlaupa inn fyrir. Að hún væri kannski svona aðeins nákvæmari og væri í meiri tengingu við hlaupið og eins að koma kannski með betri bolta fyrir markið en við eigum bara að vinna þennan leik með nokkrum mörkum sko. Ég er ólýsanlega svekktur og reiður yfir þessu."

Fjölnir á ennþá möguleika á að ná efsta sætinu þeirra og einn mögulegur jákvæður punktur fyrir þá er að topplið Aftureldingar gerði jafntefli í dag og tapaði þar af leiðandi stigum.

„Mér er nákvæmlega sama hvernig aðrir leikir fóru. Ég er að hugsa hvernig leikirnir hjá okkur fara og ég er bara orðinn ótrúlega þreyttur á því að vinna ekki leiki sem við eigum að vinna, bara ótrúlega þreyttur á því."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.