Gunnar Vatnhamar: Frábær stoðsending og ég þurfti bara að pota boltanum inn

Gunnar Vatnhamar var á skotskónum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Vatnhamar var á skotskónum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar unnu öflugan útisigur á FH í 19. umferð Bestu deild karla í kvöld.
„Mér fannst við spila góðan leik en mér fannst við fá á okkur heimskulegt mark. Við verðum að gera betur og læra af því en heilt yfir þá fannst mér við spila góðan leik" sagði Gunnar Vatnhamar leikmaður Víkinga eftir leik í kvöld.
Gunnar nefndi mörkin sem liðið fékk á sig og var ekki sáttur með að fá þau á sig.
„Allavega fyrra markið, ég man ekki eftir hinu en þegar það er fast leikatriði þá eigum við að gera betur, sérstaklega í horninu þarna þá áttum við að ráðast bara á boltann og skalla hann burt en svona er þetta stundum"
Helsti munurinn á liðunum í kvöld að mati Gunnars voru að Víkingar skoruðu fjögur mörk á meðan FH skoraði bara tvö.
„Mér fannst bæði lið berjast vel í kvöld. Bæði lið voru að sækja en helsti munurinn er sá að við skoruðum fjögur og þeir bara tvö"
Gunnar Vatnhamar skoraði þriðja mark leiksins en það var mikill heppnisstkimpill á því marki.
„Þetta var heppni hvernig þetta fór af maganum á Niko kom beint til mín. Þetta var frábær stoðsending og ég þurfti bara að pota boltanum inn og ég er bara ánægður að skora fyrir þetta lið og ég er mjög ánægður í dag, þetta var frábært" sagði Gunnar Vatnhamar.
Nánar er rætt við Gunnar Vatnhamar í spilaranum hér fyrir ofan en hann ræðir einnig yfirvofandi brottför sína frá Víkingum.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +40 | 45 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | FH | 19 | -8 | 20 |
| 10 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |
