Sölvi: Gleður mig mikið að sjá karakterinn í liðinu að við látum ekki svona slá okkur út af laginu

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar unnu öflugan útisigur á FH í 19. umferð Bestu deild karla í kvöld.
„Fyrst og fremst virkilega sáttur með þennan sigur" sagði Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga eftir sigurinn í kvöld.
„FH-ingarnir voru sprækir í dag fannst mér. Þeir voru eins og þeir hafa sýnt í undanförnum leikjum að það er erfitt að vinna þá"
„Þeir eru mjög þéttir varnarlega og eru ekki að fá á sig mikið af mörkum þannig við þurftum að vera þolinmóðir í okkar aðgerðum í dag. Reyna að færa þá hratt á milli kanta og reyna að teygja á þeim til þess að slíta þennan þéttleika hjá þeim"
„Það tókst ágætlega í dag en að sama skapi þá erum við enn og aftur að leka inn mörkum eftir föst leikatriði sem að við þurfum að gera betur í. Það er óþarfi að hleypa liðum inn í leikina í gegnum föst leikatriði"
„Við erum mjög sterkir á þessu sviði þannig það er svekkjandi að vera trekk í trekk að leka inn mörkum. Þetta er orðið svolítið held ég bara andlegt vandamál núna"
„Vð sýnum líka bara góðan karakter að lenda undir að sama skapi í síðasta leik á móti Thun í Evrópu, við lendum tvisvar undir en komum til baka. Það gleður mig mikið að sjá karakterinn í liðinu að við látum ekki svona slá okkur út af laginu og höldum bara áfram að spila okkar fótbolta og gerðum það vel á köflum í dag" sagði Sölvi Geir Ottesen.
Nánar er rætt við Sölva Geir Ottesen í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +40 | 45 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | FH | 19 | -8 | 20 |
| 10 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |
