Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 16. september 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Andri Geir og Jói Skúli velja byrjunarlið Man Utd
Manchester United hefur leik í ensku úrvalsdeildinni á laugardag þegar liðið fær Crystal Palace í heimsókn.

Andri Geir Gunnarsson og Jóhann Skúli Jónsson, stuðningsmenn Manchester United, kíktu í heimsókn í hlaðvarpsþátt á Fótbolta.net í gær og ræddu tímabilið sem er framundan.

Þeir völdu meðal annars besta mögulega byrjunarlið Manchester United.

Hér að neðan má sjá liðið en þeir ræddu einnig möguleikann á að hafa Paul Pogba aftast á miðjunni og með Bruno Fernandes og Donny van de Beek fyrir framan hann.

Fyrst um sinn búast þeir þó við að Nemanja Matic verði á miðjunni og Van De Beek byrji á bekknum en sá síðarnefndi kom frá Ajax í sumar.
Enski boltinn - Heldur uppgangur Manchester United áfram?
Athugasemdir
banner