Fotbolti.net
16.09.24 - 23:04
Brynjar Ingi Erluson

Ætlaði að bíta andstæðing sinn en hætti við á síðustu stundu

Paul Mullin

Paul Mullin

Canon

Mynd: Getty Images

Paul Mullin, sóknarmaður Wrexham í ensku C-deildinni, var einhverjum sekúndubrotum frá því að koma sér í langt bann í 3-1 tapi liðsins gegn Birmingham í toppslag deildarinnar í kvöld.
Íslendingalið Birmingham vann Hollywood-slaginn - Fjórði sigurinn í röð
TENGT EFNI

Íslendingalið Birmingham vann Hollywood-slaginn - Fjórði sigurinn í röð

Mullin, sem er langbesti leikmaður Wrexham, hefur verið iðinn við kolann síðustu ár og hjálpað liðinu að fara upp um tvær deildir á tveimur árum.

Wrexham má alls ekki við því að missa svo mikilvægan leikmann og hann hefur líklega fattað það í einu áhugaverðasta atviki leiksins gegn Birmingham í kvöld.

Mullin og Alex Cochrane börðust í leiknum og í einu atvikinu fóru þeir báðir í grasið. Mullin var með andlitið við kálfa Cochrane og íhugaði alvarlega að bíta hann, en hætti við á síðustu stundu.

Ef hann hefði farið alla leið þá ætti hann yfir höfði sér margra leikja bann eins og úrúgvæski framherjinn fékk að kynnast fyrr á ferlinum, en hann hefur þrisvar sinnum verið dæmdur í bann fyrir að bíta andstæðing.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.