Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. október 2021 14:44
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Stórkostleg mörk í Leicester
Youri Tielemans skoraði frábært mark
Youri Tielemans skoraði frábært mark
Mynd: Getty Images
Leicester City og Manchester United eigast við á King Power-leikvanginum í Leicester og er staðan þar 1-1. Bæði mörk leiksins voru af dýrari gerðinni.

Mason Greenwood kom United yfir með góðu vinstri fótar skoti fyrir utan teig og átti Kasper Schmeichel ekki möguleika á að verja.

Belgíski landsliðsmaðurinn Youri Tielemans svaraði tólf mínútum síðar. Harry Maguire svaf á verðinum. David De Gea átti sendingu á Maguire en enski landsliðsmaðurinn beið eftir boltanum sem varði til þess að heimamenn náðu að stela boltanum.

Tielemans fékk boltann rétt fyrir utan teiginn og lyfti honum hátt yfir De Gea og í samskeytin. Hægt er að sjá bæði mörkin hér fyrir neðan.

Markið hjá Greenwood

Markið hjá Tielemans
Athugasemdir
banner
banner