Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
banner
   mán 16. október 2023 16:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool og Bayern berjast um Max Eberl
Max Eberl.
Max Eberl.
Mynd: EPA
Liverpool hefur sett sig í samband við Max Eberl um að taka við starfi yfirmanns fótboltamála hjá félaginu.

Þetta kemur fram í þýska fjölmiðlinum Bild.

Eberl var nýverið rekinn frá RB Leipzig. Það var ánægja með störf hans en það var talið að hann vildi ekki skrifa undir nýjan samning og því var hann látinn fara.

Eberl hafði verið í starfi hjá Leipzig í tæplega tvö ár eftir að félagið stal honum frá Borussia Mönchengladbach.

Jörg Schmadtke er núna yfirmaður fótboltamála hjá Liverpool en hann skrifaði aðeins undir eins árs samning. Það er þó ekki útilokað að hann verði áfram.

Ef hann verður hins vegar ekki áfram, þá er Eberl mjög ofarlega á lista. Eberl er með sama umboðsmann og Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Liverpool mun þó fá samkeppni frá þýska stórveldinu Bayern München um Eberl.
Athugasemdir
banner