Ray Farrugia, þjálfari Möltu, man ekkert eftir síðustu tuttugu mínútunum í 7-0 tapi liðsins gegn Spánverjum í gær en hann rotaðist á 64. mínútu leiksins.
Farrugia rak sig höfuðið í skýlið þar sem leikmenn sátu og þurfti að hlúa að honum.
Eftir að atvikið átti sér stað sást hann oft í mynd þar sem hann hélt um höfuðið og var ekki alveg með einbeitingu á það sem var að gerast á vellinum.
Hann viðurkennir að hann man ekkert eftir síðustu tuttugu mínútum leiksins.
„Ég man eiginlega ekkert hvað gerðist síðustu tuttugu mínúturnar," sagði hann á blaðamannafundi eftir leikinn.
Not a good night for Malta and coach Ray Farrugia in Spain.
— Sacha Pisani (@Sachk0) November 16, 2019
Farrugia was reportedly knocked out after appearing to strike his head against the structure of the bench!https://t.co/o2EbqaOXFx#Euro2020 #EspanaMalta
Athugasemdir