Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. nóvember 2020 23:17
Brynjar Ingi Erluson
Marchisio við Pogba: Komdu aftur til Juventus
Mynd: Getty Images
Claudio Marchisio, fyrrum liðsfélagi Paul Pogba hjá Juventus. biður franska miðjumanninn um að koma aftur til Juventus á Twitter í dag en Pogba er sagður afar óánægður hjá Manchester United.

Pogba verður samningslaus eftir eitt og hálft ár og ætlar hann sér ekki að framlengja samning sinn við Manchester United.

Hann hefur verið orðaður reglulega við Barcelona, Juventus, Paris Saint-Germain og Real Madrid en leikmaðurinn hefur sjálfur greint frá því að þetta sé erfiðasti kafli ferilsins.

Marchisio, sem spilaði með Pogba hjá Juventus, lagði skóna á hilluna á síðasta ári en hann vonast til að fá leikmanninn aftur til Ítalíu.

„Komdu aftur til Juventus. Þú verður ánægður hér og það verð ég líka!" sagði Marchisio við Pogba á Twitter.

Pogba spilaði með Juventus í fjögur ár og var einn besti leikmaður liðsins áður en hann hélt aftur til Manchester United árið 2016.
Athugasemdir
banner
banner