Fotbolti.net
16.11.23 - 18:29
Ívan Guðjón Baldursson

Arna Sif framlengir við Val (Staðfest)

Arna Sif framlengir við Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Arna Sif Ásgrímsdóttir er búin að skrifa undir nýjan samning við Val eftir að hafa verið algjör lykilleikmaður í liðinu frá komu sinni til félagsins í fyrra.
Valur hefur unnið Bestu deildina bæði tímabilin sem Arna Sif hefur verið hjá félaginu og var hún valin besti leikmaður Bestu deildarinnar á þessu ári.

Arna, sem er fædd 1992, á 268 leiki að baki í efstu deild kvenna og hefur hún skorað í þeim 46 mörk þrátt fyrir að spila sem varnarmaður.

Hún á 17 A-landsleiki að baki fyrir Ísland og 40 leiki fyrir yngri landsliðin.

Arna er uppalin á Akureyri og gerði hún garðinn frægan með Þór/KA áður en hún reyndi fyrir sér í atvinnumennsku í Svíþjóð og á Ítalíu.

„Arna Sif hefur verið frábær leiðtogi og fyrirmynd innan félagsins, bæði fyrir liðsfélaga og unga iðkendur og því mikil ánægja að við fáum að njóta krafta hennar áfram!" segir meðal annars í tilkynningu frá Val, en ekki er tekið fram hversu langan samning Arna skrifar undir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.