Fotbolti.net
16.11.23 - 18:54
Ívan Guðjón Baldursson

Gylfi Tryggva hættur með Árbæ (Staðfest)

Gylfi Tryggva hættur með Árbæ (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimavöllurinn

Gylfi Tryggvason hefur ákveðið að hætta starfi sínu sem þjálfari FC Árbær eftir að hafa náð flottum árangri með liðið.
Gylfi Tryggva er fyrsti þjálfari Árbæjar frá stöfnun félagsins en hann er fótboltaunnendum einnig kunnur vegna starfa sinna sem dómari og vegna vinsælla hlaðvarpsþátta sem fjalla um neðri deildirnar á Íslandi.

Gylfi hefur haldið úti hlaðvarpinu Ástríðan og staðfesti hann fregnirnar sjálfur í nýjasta þætti.

Árbær fór upp úr 4. deildinni á sínu fyrsta ári og endaði svo í þriðja sæti 3. deildar í ár, aðeins þremur stigum á eftir Kormáki/Hvöt í öðru sæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.