Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   fös 17. janúar 2020 21:21
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Gregoritsch sá um Gladbach í toppbaráttunni
Schalke 2 - 0 Borussia M'Gladbach
1-0 Suat Serdar ('48)
2-0 Michael Gregoritsch ('58)

Schalke fékk Borussia Mönchengladbach í heimsókn í þýsku toppbaráttunni og var staðan markalaus eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik.

Heimamenn byrjuðu seinni hálfleikinn mjög vel og skoraði Suat Serdar með góðu skoti við vítateigsbogann eftir sendingu frá Michael Gregoritsch.

Austurríski sóknartengiliðurinn Gregoritsch er nýgenginn til liðs við Schalke, á lánssamningi frá Augsburg. Gregoritsch tvöfaldaði forystu Schalke tíu mínútum síðar eftir góða skyndisókn.

Gestirnir frá Mönchengladbach reyndu sitt besta til að minnka muninn og átti mikið af marktilraunum síðasta hálftíma leiksins, en inn vildi boltinn ekki.

Gladbach er áfram í öðru sæti þýsku deildarinnar en Schalke er komið upp í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 30 25 4 1 109 29 +80 79
2 Dortmund 30 19 7 4 61 31 +30 64
3 RB Leipzig 30 18 5 7 59 37 +22 59
4 Stuttgart 30 17 5 8 62 42 +20 56
5 Hoffenheim 30 16 6 8 59 44 +15 54
6 Leverkusen 30 15 7 8 60 41 +19 52
7 Freiburg 30 12 7 11 44 48 -4 43
8 Frankfurt 30 11 9 10 55 57 -2 42
9 Augsburg 30 10 6 14 38 54 -16 36
10 Mainz 30 8 10 12 36 45 -9 34
11 Union Berlin 30 8 8 14 34 52 -18 32
12 Köln 30 7 10 13 44 51 -7 31
13 Gladbach 30 7 10 13 36 50 -14 31
14 Hamburger 30 7 10 13 33 48 -15 31
15 Werder 30 8 7 15 35 53 -18 31
16 St. Pauli 30 6 8 16 26 51 -25 26
17 Wolfsburg 30 6 6 18 41 66 -25 24
18 Heidenheim 30 4 7 19 33 66 -33 19
Slapp
banner
banner