Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. janúar 2023 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Saliba er hamingjusamur - Í viðræðum við Arsenal
Mynd: Getty Images

William Saliba, 21 árs miðvörður Arsenal og franska landsliðsins, er spenntur fyrir að skrifa undir nýjan samning hjá félaginu. Saliba segist vera að njóta sín í botn hjá Arsenal og vill vera áfram hjá félaginu næstu árin. Samningur hans átti að renna út næsta sumar en félagið nýtti ákvæði til að framlengja um eitt ár.


Líf Saliba hjá Arsenal hefur þó ekki alltaf verið dans á rósum, því fyrstu árin hjá félaginu voru gríðarlega erfið. Hann skipti yfir til Arsenal sem táningur og missti báða foreldra sína í kjölfarið - en nú er staðan orðin talsvert betri.

„Ég er svo hamingjusamur hérna hjá Arsenal. Félagið er í viðræðum við umboðsmanninn minn um nýjan samning. Eina sem ég get gert er að einbeita mér að því að spila fótbolta, en ég er virkilega hamingjusamur hérna," sagði Saliba í viðtali í dag.

Hjá Arsenal hefur Saliba myndað gífurlega öflugt miðvarðapar með hinum brasilíska Gabriel Magalhaes, sem er 25 ára.


Enski boltinn - London er rauð og það er Manchester líka
Athugasemdir
banner
banner