Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. febrúar 2021 19:57
Ívan Guðjón Baldursson
England: Jafnt hjá Burnley og Fulham
Mynd: Getty Images
Burnley 1 - 1 Fulham
0-1 Ola Aina ('49)
1-1 Ashley Barnes ('52)

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley en fór meiddur af velli eftir 40 mínútur í jafntefli gegn nýliðum Fulham.

Jafnræði ríkti með liðunum og var staðan markalaus í leikhlé en Ola Aina kom gestunum yfir í upphafi síðari hálfleiks.

Ashley Barnes var snöggur að jafna eftir stoðsendingu frá Jay Rodriguez og þar við sat, lokatölur urðu 1-1.

Burnley er með 27 stig, átta stigum fyrir ofan Fulham sem er í fallsæti.
Athugasemdir
banner